Bólivar - Bubbi Morthens

Bólivar - Bubbi Morthens

  • Rok wydania: 2015
  • Język: islandzki
  • Czas trwania: 6:24

Poniżej tekst piosenki Bólivar , wykonawca - Bubbi Morthens z tłumaczeniem

Tekst piosenki „ Bólivar ”

Oryginalny tekst z tłumaczeniem

Bólivar

Bubbi Morthens

Karlar sjö úr öllum áttum

Eiga hafnarfrí

Fullir inn á fyrstu knæpu

Frjálsir menn á ný

Við skulum drengir drekka og slást

Dreypa á stelpurnar

Við sem yfir Fetlaflóa

Fleyttum «Bólivar»

Rambaði hann í hvítum mekki

Hrikti í nagla og ró

Kolin uppi, laus í löðri

Lestin hálf af sjó

Lekadallur djöfuls sleði

Dæmdra manna far

Svona út á Fetlaflóa

Flaut hann «Bólivar»

Baksaði eins og særður sjófugl

Sífellt út á hlið

Umdi og glumdi eins og smiðja

Ágjöf hverja við

Aðeins stromp og eina siglu yfir löðrið bar

Svona var um Fetlaflóa

Að fleyta «Bólivar»

Sjó um þilfar, kol um kjalsog

Kuggsins fyllti í senn

Skinn úr lófum, frosnir fætur

Feigðartrylltir menn

Fari hann þá sem fyrst í víti

Fái hann lending þar!

Loks varð bæn á Fetlaflóa

Fyrir «Bólivar»

Aldrei hvíld — í hæsta lagi

Hálfmók andartak

Ryðnaglarnir sviptust sundur

Súð og þilfar lak

Áttavitinn elti skott sitt

Eins og köttur snar

Það var syðst á Fetlaflóa

Á ferð með «Bólivar»

Skall þá yfir skell að aftan

Skipstjórinn hló og kvað:

«Hjólið fór til vítis vinir!

Vindurnar af stað!

Festið strax úr stýrishausnum

Streng á trissurnar!»

Svona loks um Fetlaflóann

Fleytt var «Bólivar»

Eins og brenglað, beyglað, hrúgald

Bik og ryð í graut

Baksaði hann til Bilbaó

Með bilað stýri -og flaut!

Ræflum sjö á hripið lögðu

Í hinsta ferðalag

Drottins storma tókst að trompa

Og taka af Ægi slag!

Karlar sjö sem voru í víti

Vappa í land á ný

Fullir inn á fyrstu knæpu

Frjálsir menn á ný

En hvernig er með eigendurna

Er eigi gleði þar?

Yfir því að heim í höfn

Komst hripið «Bólivar»?

Nowe teksty i tłumaczenia na stronie:

Ponad 2 miliony tekstów piosenek

Piosenki w różnych językach

Tłumaczenia

Wysokiej jakości tłumaczenia na wszystkie języki

Szybkie wyszukiwanie

Znajdź potrzebne teksty w kilka sekund