Brestir - Árstíðir

Brestir - Árstíðir

Альбом
Svefns Og Vöku Skil
Год
2017
Язык
`islandzki`
Длительность
166300

Poniżej tekst piosenki Brestir , wykonawca - Árstíðir z tłumaczeniem

Tekst piosenki „ Brestir ”

Oryginalny tekst z tłumaczeniem

Brestir

Árstíðir

Djúpt í fylgsnum hugar

Sorginni hann leynir

Á hana ekkert dugar

Kosti enga greinir

Sama hvað hann reynir

Áhrif hefur á hans

Ákvarðanir allar

Sjást í skini mánans

Brestir hans og gallar

Myrkrið til hans kallar

Deginum feginn hann er

Stund milli stríða

En er dagur hallandi fer

Aftur er þjakaður kvíða

Slikju næturinnar

Umvafinn hann liggur

Fangi sorgar sinnar

Hugsar bara hyggur

Hrakinn bæði og hryggur

Sú hugsun liggur, læðist

Að ófreskja hans vanda

Sem stjórnlaust áfram æðir

Um sálarinnar sanda

Að endingu mun granda

Deginum feginn hann er

Stund milli stríða

En er dagur hallandi fer

Aftur er þjakaður kvíða

Ponad 2 miliony tekstów piosenek

Piosenki w różnych językach

Tłumaczenia

Wysokiej jakości tłumaczenia na wszystkie języki

Szybkie wyszukiwanie

Znajdź potrzebne teksty w kilka sekund